Ég bloggaði fyrir stuttu um myndbandið “born this way” með Lady Gaga.
Í myndbandinu var ég hrifnust af stíliseringunni þar sem Lady Gaga og ónefndur karlmaður eru bæði máluð eins og beinagrindur og klædd í jakkaföt.
Fyrir stuttu komst ég að því að karlmaðurinn í myndbandinu var ekki með málningu heldur eru þetta húðflúr! Drengurinn er kallaður Zombie-Boy af augljósum ástæðum, réttu nafni heitir hann Rick Genest.
Það þarf mikinn kjark (og mögulega dass af heimsku) til að þora svona rótækum breytingum á líkama sínum.
Mörgum finnst hann örugglega krípí en mér finnst hann hottí!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.