Tískubloggarinn Tavi sem heldur úti síðunni thestylerookie.com er orðin einn frægasti tískubloggari heims. Tavi hóf að blogga um tísku aðeins ellefu ára gömul og vakti strax athygli tískuhönnuða fyrir skarpt og smekklegt auga sitt.
Í kjölfarið hefur Tavi, sem nún er fjórtan ára gömul, verið boðið á allar helstu tískuvikur heims og hún fær föt send frá heitustu hönnuðum heims.
Það vekur því óneitanlega athygli að í síðustu færslu sinni klæðist Tavi skóm frá íslenska merkinu Kron by KronKron sem er bæði viðurkenning fyrir merkið og ávísun á mikla erlenda athygli.
Af KronKron er það annars helst að frétta að ný og litaglöð lína af sokkabuxum hefur litið dagsins ljós og mun eflaust kæta aðdáendur.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.