Það er óhætt að kalla Woody Harrelson ólátabelg á sextugsaldri en kappinn djammaði svo mikið fyrir frumsýningu barna -og fjölskyldumyndarinnar Free Bird að hann fór ekki að sofa fyrr en klukkan sex.
Leikarinn drakk og djammaði með bróður sínum þangað til þremur klukkustundum áður en hann mætti á rauða dregilinn, þá glerþunnur eins og það er kallað.
Sem betur fer (fyrir hann) á hann skilningsríkan vin í leikaranum Owen Wilson en sá bakkaði hann upp og tók að sér að svara flestum spurningum blaðamannanna.
Woody sagði frá þessu í viðtali hjá Jimmi Kimmel.
“Þú veist, þetta er barnamynd og ég er þarna gangandi um… ekki fallegt. Svo var ég búin að semja við Owen um að svara flestum spurningunum og hann gerir það en endar svo alltaf á að spyrja mig hvað mér finnist um svarið. Ég var auðvitað alltaf bara sammála öllu.”
Leikararnir eru nokkuð ágætir í að vera til vandræða saman en þegar þeir voru að taka upp talið fyrir myndina þurfti leikstjórinn að aðskilja þá. Þeir komu víst engu í verk þegar þeir voru saman í klefanum.
Owen er sjálfur nokkuð þekktur í Hollywood fyrir eigin drykkjusemi en talsvert er síðan hann fór að mæta á AA fundi. Hvort hann hangir þurr getur Pjattið hinsvegar ekki fullyrt. Vonum það.
Hér er sýnishorn úr myndinni…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=CbkietItjNc[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.