Ég rakst á ótrúlega skemmtilegt tískublogg hjá 3 ungum stelpum fyrir stuttu. Mér skilst að það séu tvær systur og 1 vinkona.
Þær bæði taka myndir af sjálfum sér og flottu fötunum sínum ásamt því að blogga um nýjustu tísku. Mér finnst alltaf svo gaman að rekast á skemmtileg íslensk blogg.
Þær eru allar með ólíkan stíl og allar ótrúlega smart! Flottar stelpur hér á ferð. Í einu blogginu fær maður að sjá mynd af mömmu þeirra og það er sko ekki erfitt að sjá hvaðan stúlkurnar fá sitt frábæra tískuvit ! Þetta er klárlega uppáhalds íslenska bloggið mitt í dag – fyrir utan pjattrófurnar auðvitað 😉
Ég hvet ykkur til að fylgjast með blogginu þeirra HÉR.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.