…sólin er lengur með okkur, við hengjum þvottinn út, sængurfötin ilma, ávextirnir ferskari, fleiri litir, bjartari fegurð -bæði hér og í Japan þar sem þessar skemmtilegu myndir eru teknar.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og þoli ekki arfa i görðum (miðaldra). Hef ólæknandi áhuga á heimildarmyndum og norrænum sakamálasögum og fæ kikk út úr því að fara á allskonar skrítin námskeið. Ég er óhemju forvitin og nýt þess að miðla og deila því sem ég sé og upplifi með öðrum. Til dæmis hér, – með þér.