Lady Gaga og Michelle Obama ofarlega á lista: Það er alltaf skemmtilegt að glugga í “best-dressed” lista tímarita og dagblaða sem birtast um áramót hvers árs og fá innblástur frá konum sem sannarlega kunna að setja saman spjarirnar. Vogue birtir vikulegan lista á netinu yfir tíu best klæddu konurnar en nú í byrjun janúar birti tímaritið einnig lista yfir best klæddu konur áratugsins.
Að mati tískuspekúlanta Vogue eru þær sem tróna hæst yfir smekklegustu nú eða frumlegustu konur síðastliðinna tíu ára meðal annars fyrirsætan Kate Moss, forsetafrú Bandaríkjanna Michelle Obama, söngkonan Lady Gaga, leikkonan Sarah Jessica Parker og sjónvarpskonan Alexa Chung. Á listanum yfir best klæddu konurnar fyrstu vikuna í janúar eru meðal annars leikkonan Gwyneth Paltrow, Kate Moss enn og aftur og leikkonan Kirsten Dunst.
Hér eru nokkrar myndir af þessum smekklegu konum til innblásturs.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.