Margir álíta sem svo að fyrirsætur séu bara heimskar stelpur. Það er auðvitað alls ekki satt, auðvitað eru fyrirsætur jafn mismunandi eins og þær eru margar og það sem þær láta út úr sér er álíka misjafnt…
Hér eru nokkur vel valin orð frá fyrirsætum:
Freja Beha Erichsen: “Að vera módel er frekar auðvelt. Þú labbar bara”
Naomi Campbell: “Ég fer aldrei í megrun. Ég reyki. Ég drekk stundum. Ég stunda aldrei líkamsrækt.” – Góð fyrirmynd Naomi!
Cindy Crawford: “Ekki einu sinni ég vakna á morgnana og lít út eins og Cindy Crawford”
Kelly Brook: “Sumt fólk heldur að annað fólk geti ekki verið gáfað ef það er með brjóst”.
Janice Dickinson: “Ég mun aldrei svara manneskju, konu, karli, grænmeti eða steinefni sem segir mér að halda kjafti.” – Janice er hörð!
Adriana Lima: “Ef ég eignast einhverntíman dóttur sem vill verða fyrirsæta myndi ég aldrei leyfa henni það!”
Kate Moss: “Fólk heyrir mig ekki tala, það býst ekki við því að ég hafi skoðanir” – Kate ekki ánægð með viðhorf fólks til fyrirsætna.
Katie Price (Jordan): “Ég verð mjög full eftir aðeins nokkra drykki. Ég verð sexý dónaleg ekki pirrandi dónaleg. ” – Já elsku Katie mín……
Paris Hilton: “Mér finnst að allir ættu að lifa eins og hver dagur sé afmælisdagurinn þeirra.” – frábært heilræði hjá þér Paris. En flestar konur þurfa að vinna og sjá um heimili og geta því ekki leikið sér alla daga 😉
Nokkrar myndir af þessum fögru fljóðum:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.