Það er heldur betur óhætt að segja að þessi gull kjóll frá Balmain sé vinsæll en hann var að landa sjöundu forsíðunni nýlega…
…Nýjasta forsíðan er breska Elle en það er leikkonan Anne Hathaway sem klæðist þessum fræga kjól á coverinu. Aðrar skvísur sem hafa klæðst honum á forsíðum tímarita eru til dæmis Abbey Lee Kershaw, Anna Dello Russo, Claudia Schiffer og ekki má gleyma Nataliu Vodianovu sem klæddist honum einmitt aftur í Harper’s Bazaar partíi og fékk mikla athygli fyrir að vera með loðna leggi.
Kjóllinn kostar ekki nema um 4 millur en kjólin er hægt að fá í tvem lengdum. Það var Anja Rubik sem að sýndi styttir útgáfuna fyrst á Balmain tískusýningunni fyrir haustið 2010 og hafa greinilega margir ritstjórar fallið fyrir honum þá.
Þá er bara spurning, hvaða forsíða er flottust?
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.