Pjattrófurnar skora á lesendur að senda spurningar í sambandi við hár og hárumhirðu til okkar.
Snillingarnir á Salon Veh fengust til þess að svala forvitni og fróðleiksfýsn lesenda okkar og ætla að reyna að hjálpa þér að fá svör við spurningum sem tengjast þeirra fagi.
Hvað viltu vita… góðar hárnæringar? Hvernig fær maður sólgylltan blæ? Hvað á að fara oft í klippingu? Er aflitun óholl? Hvað gerir maður við feitt hár? Á ég að þora að fara í stutt? Hvaða sídd hentar mínu andlitslagi?
Láttu spurningarnar koma og þér verður eflaust svarað. Tökum á móti pósti á pjattrofur at eyjan punktur is og við komum þessu áfram til Sillu, Hreiðars, Simba og félaga.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.