Þá er komið að því að við Pjattrófur förum í gang með einn af okkar frábæru gjafaleikjum. Í þetta sinn ætlum við að gefa ykkur þrjátíu stykki af frábærri græju frá Veet en þetta er vaxpenni sem er sérstaklega hannaður til að fjarlægja hár í andliti.
Þú getur notað m.a. notað pennann á augabrúnir, fyrir ofan efri vör og á höku og hann er sérlega áhrifaríkur því með honum nærðu fullkomnum og langvarandi árangri.
Vaxið er með möndluolíu og öðru megin á pennanum er Aloe Vera krem sem bera skal eftir á, á það svæði sem var vaxað. Veet vaxpennann er hægt að nota í allt að 20 skipti en hann er prófaður af húðlæknum.
Nú langar okkur á Pjatt.is, í samstarfi við Veet, að fá að vita hvað þér finnst um þessa vöru og því viljum við gefa 30 konum eintak af Veet vax pennanum.
Þegar þú ert búin að prófa skaltu senda okkur nokkur orð um reynslu þína af vörunni á netfangið veet@hj.is en ein af þeim 30 sem senda okkur póst verður dregin úr potti og fær að launum lúxus gjafakörfu sem inniheldur m.a. ilmvatn frá Gucci, hárvörur frá Sebastian og sokkabuxur frá Filodoro!!
Vörurnar eru að verðmæti 50.000 – það ætti alveg að vera hægt að gera sig sætari fyrir þann pening!
Til að eiga möguleika á þessu frábæra 30 kvenna happadrætti skaltu skilja eftir athugsemd við þessa mynd á Facebook síðu Pjatt.is og við drögum út nöfnin. Smelltu HÉR til að sjá myndina.
Einfalt? Já – það höldum við nú!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.