Sjónvarpsmyndin Liz & Dick verður frumsýnd á sjónvarpstöðinni Lifetime nú í Nóvembermánuði.
“Treilerinn” hefur verið gefinn út og er Lindsay glæsileg í hlutverki Liz Taylor sem fór aldrei leynt með ást sína á demöntum — og karlmönnum!
Richard Burton og Liz Taylor kynntust við tökur á kvikmyndinni “Cleopatra” en samband þeirra var afar stormasamt. Þau skildu og giftust aftur en seinna hjónaband þeirra endaði einnig með skilnaði. Þau voru bæði stórstjörnur síns tíma og voru hundelt af pressunni allt sitt samband. Þau elskuðu að lifa í glamúr glysborgarinnar og áttu snekkju, notuðu einkaflugvélar og Liz vildi að sjálfsögðu eiga fleiri og fleiri demanta sem henni tókst með glæsibrag því safn hennar varð á endanum eitt það verðmætasta í heimi.
Hér að neðan má er stiklan:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=0Npfx-ov3oM[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig