Jæja dömur, þá er úti um drauminn, hann er búin að biðja hana að giftast sér, – draumaprinsinn mikli sem hingað til hefur verið talin einn helsti glaumgosi Hollywood ætlar að gifta sig.
Það er bandaríska slúðurblaðið USA Today sem greinir frá þessu en sú sem á hans hug og hjarta er breski lögfræðingurinn Amal Alamuddin, 36 ára að aldri.
Clooney hefur verið á markaðnum síðan 1993 en þá lauk hans fyrsta hjónabandi sem hafði þá staðið í 4 ár.
hann hefur síðan deitað ógrynnin öll af fallegum Hollywood dísum, ber þar meðal annars að nefna Lucy Liu, Stacy Keibler og Renee Zellweger.
Bónorð Clooneys kemur mörgum í opna skjöldu þar sem þau byrjuðu bara að hittast síðasta haust.
Heimildin mun koma frá fólki sem sá stóran trúlofunarhring á fingri Alamuddin þegar þau skötuhjúin komu að hitta Cindy Crawford og eiginmann hennar Rande Gerber í kvöldmat á Malibu í síðustu viku.
Amal þessi er enginn selebbi en hún er mjög aktív í mannúðar og góðgjörðarmálum. Líklegt er að Georg hafi í gegnum þetta fengið augastað á stelpunni sem hann er svona yfir sig skotin í.
Við segjum bara til hamingju þið tvö en hikstum samt aðeins í koddann.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.