Hin árlega tískusýninginn undirfatarisans Victoria’s Secret var haldin með pompi og prakt í London þann 3. des síðastliðinn.
Sýningin var glæsileg að vanda og fyrirsæturnar ekki af verri endanum en þær sem komu fram voru m.a. Adriana Lima, Alessandra Ambrosio, Candice Swanepoel, Douzten Kroes, Lily Aldridge, Lindsay Ellingson, ásamt mörgum öðrum flottum fyrirsætum. Þær Taylor Swift og Ariana Grande voru meðal þeirra listamanna sem fram komu á hátíðinni.
Hér koma fleiri myndir frá sýningunni
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com