Victoria Beckham þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hafa ekki fylgdarsvein á rauða dreglinum þegar David Beckham er ekki heima, enda eiga hjónin þrjá fjallmyndarlega syni.
David var staddur í New York þegar Victoria mætti á Harper´s Bazaar verðlaunahátíðina þar sem að kona ársins var kosin. Brooklyn sonur þeirra hljóp í skarðið fyrir pabba sinn en Victoria fékk verðlaun fyrir framlag sitt til breska tískugeirans eða “Special Contribution to British Fashion”.
Mæðginin voru afar flott saman á rauða dreglinum. Victoria klæddist eigin hönnun en Brooklyn var í svörtum jakkafötum, hvítri skyrtu og með svart bindi.
Victoria virtist vera afar stolt mamma á rauða dreglinum þegar þau stilltu sér upp fyrir ljósmyndarana. Brooklyn var ekkert feiminn fyrir framan myndavélarnar, leyfði mömmu sinni að taka utan um sig og stillti sér upp með henni án þess að verða vandræðalegur.
Ætli Brooklyn verði módel, fótboltakappi eða hönnuður? Eða bara eitthvað allt annað? Það verður spennandi að fylgjast með þessum unga dreng í framtíðinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig