Victoria Beckham býr í Los Angeles ásamt eiginmanni sínum fótboltakappanum David Beckham ásamt þremur sonum þeirra hjóna Brooklyn 11 ára, Romeo 7 ára og Cruz sem er 5 ára.
Hún lifir í heimi sem aðrar konur dreymir aðeins um að upplifa -eintóm ferðalög með David, partý með Hollywood liðinu og myndatökur með Elle, Vogue, BAZAAR svo fátt eitt sé nefnt.
Hún hannar sína eigin fatalínu sem heitir einfaldlega Victoria Bcckham og þá er hún einnig með gallabuxnalínu sem ber heitið Victoria Beckham Denim.
Victoria prýðir forsíðu mars mánaðar bandaríska Glamour tímaraitsins.
Daman fer létt með að pósa eins og sönn húsmóðir í háum hælum með flotta leggi ekki gleymir hún hinum fræga stútsvip sínum.
Ég held að David verði glaður gaur með þessa húsmóður.. þó ég leyfi mér að efast um að hún gefi sér mikin tíma fyrir bakstur eða önnur þrif á heimilinu.
Ef ég þekki dömuna rétt held hún velji heldur verslunarferðir í Gucci, Dior, Chanel, Fendi, Armani…förðunin, stílisering og myndirnar gordjöss!
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.