Victoria Beckham er dugleg að minna okkur að það liggi betur fyrir henni að vinna í heimi tískunnar en að taka þátt í poppinu og smátt og smátt er heimurinn byrjaður að trúa henni.
Enginn átti t.d. von á að fatalínan hennar myndi ganga jafn ofboðslega vel og raun ber vitni en konur á öllum aldri virðast hafa tekið línunni hennar fagnandi.
Hér má sjá nokkrar myndir af frú Beckham í nýjasta eintakinu af Harpers Baazar -og þar fer ekkert að milli mála -að daman er fædd til að pósa.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.