Glanstímaritið Glamour hélt heljarinnar veislu á dögunum þar sem konur úr skemmtanabransanum voru heiðraðar.
Victoria Beckham var kosin kona áratugarins á samkomunni en hún hefur byggt tískuveldi sitt upp á stuttum tíma og þekkist hönnun hennar og nafn út um allan heim.
Elsti sonur Victoriu Brooklyn (14) mætti með henni í veisluna en David er í viðskiptaerindum í Bandaríkjunum og var Brooklyn voða sætur fylgdarmaður mömmu sinnar.
Þegar Victoria tók við verðlaununum sagði hún:
“Ég vil óska öllum konum til hamingju, ég elska að styðja konur-Girl Power”! Victoria þakkaði einnig syni sínum fyrir að fylgja sér og sagði að hann hefði samþykkt að koma með sér til þess að forðast heimanámið. Hún þakkaði einnig mömmu sinni og pabba ásamt eiginmanninum David og lét einnig fylgja sérstakar þakkir til Simon Fuller en hann var maðurinn á bakvið Spice Girls.
Victoria sagði að síðustu tíu ár hefðu verið dásamleg. Hún sagðist einnig vera afar þakklát fyrir að gera það sem hún gerir í dag en hún minntist einnig á það að eftir um tíu ár þá verður hún fimmtug! Victoria klæddist víðum svörtum buxum og ermalausum topp við þær.
Hörkukvendi sem lætur drauma sína rætast!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig