David Beckham tilkynnti það nýverið að hann ætli að leggja fótboltaskóna á hilluna þegar þessu tímabili lýkur.
Líf David og fjölskyldu hans hefur snúist meira og minna um knattspyrnu og hefur fjölskyldan fylgt David hvert fótmál. Þau hafa meðal annars búið í Madrid, London og Los Angeles. Á þessu tímabili hefur hann spilað í Frakklandi og hafa þau hjónin verið dugleg að flakka á milli Bretlands og Frakklands til þess að hittast sem oftast og svo að David sjái börnin sín líka.
Victoria hefur alltaf verið stolt af David og því sem hann hefur afrekað í knattspyrnunni en hún sagði reyndar í viðtali fyrr á árinu að núna væri kominn tími fyrir hana. Fjölskyldan þyrfti líka að komast í fastar skorður og það er ein af ástæðum þess að þau eru komin aftur heim til London svo að Victoria geti sinnt tískuveldi sínu betur.
Victoria setti á Twitter mynd af þeim hjúum saman í fríi um áramótin og skrifaði undir hana “Takk fyrir allar kveðjurnar, við erum mjög stolt af þér David”. Það glittir meira að segja í smá bros hjá Frú Victoriu á myndinni, kannski að hún sé bara himinlifandi yfir þessari ákvörðun kappans.
David hefur spilað með þeim bestu gegnum árin og unnið ótal titla með liðum sínum svo það verður fróðlegt að sjá hvaða skref hann tekur næst.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig