Victoria Beckham segir í desemberútgáfu Vogue að hún hafi engan áhuga fyrir því að koma saman með Spice Girls aftur, sá tími sé einfaldlega liðinn.
Victoria og David eru saman á forsíðu blaðsins og í viðtalinu kemur meðal annars fram að Victoria hafi alltaf verið afar feimin en þannig var Posh Spice til.
Hinar stelpurnar í sveitinni voru alltaf hoppandi og skoppandi út um allt á meðan Victoria var alvarleg á svip en hún segir að það hafi eindaldlega verið því hún var óörugg og feimin. “Posh” kryddið var ekki þekkt fyrir það að vera hoppandi, öskrandi eða annað slíkt og þess vegna hentaði það Victoriu vel að setja bara stút á munninn og vera alvarleg, þannig sé hún í raun og veru-frekar alvarleg en geti þó alveg skemmt sér vel þegar við á.
Kryddpíurnar komu saman árið 2008 og fóru í tónleikaferðalag en Victoria segir að það hafi verið mistök því hún hafi ekki haft neina löngun til þess að “túra” og vildi einbeita sér að því sem hún var að gera, hanna föt. Hönnun sé hennar ástríða og það sé það eina sem hún vil gera núna, söngferillinn er löngu kominn ofan í kassa.
Orðrómur er einnig á kreiki að Victoria og Mel B tali ekki saman en Mel B finnst Victoria vera orðin ansi merkileg með sig, búin að gleyma því að Spice Girls komu henni á þann stað sem hún er á í dag.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig