Frú Victoria Beckham er að njóta þess í botn að David hefur lagt skóna sína á hilluna og nýtir hvert tækifæri til þess að eiga samverustundir með fjölskyldunni.
Victoria og David buðu strákunum sínum í hestaferð í Los Angeles fyrir stuttu og það vakti mikla athygli að Victoria var afar afslöppuð og “hversdagslega” klædd í sandölum, gallabuxum, hlýrabol og lítið máluð en hönnuðurinn er þekkt fyrir að vera alltaf í afar háum hælum og vel til höfð.
David, Victoria og strákarnir virtust skemmta sér konunglega og David var duglegur að taka myndir af þeim í ferðinni en Harper litla var eftir heima enda bara tveggja ára og örugglega að taka sér lúr.
Eftir að David ákvað að hætta í fótbolta hefur hann fengið tilboð hér og þar og honum hefur meira að segja verið boðið að leika í nokkrum kvikmyndum en kappinn er enn að skoða hvað hann á að taka sér fyrir hendur næst. Það er aldrei að vita nema hann fari að þjálfa eitthvað lið í fótboltanum á næstunni en líf hans hefur snúist um fótbolta nánast alla tíð.
Það er gaman að sjá hversu hamingjusöm David og Victoria eru núna en hjónaband þeirra hefur farið í gegnum súrt og sætt undanfarin ár.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig