Hin unga og án efa mest myndaða barn í heiminum núna Harper Seven fékk að taka þátt í undirbúning tískusýningar Victoriu Beckham fyrir tískuvikuna í NEw York.
Victoria setti inn mynd af litlu sætu Harper á Twitter skömmu eftir sýninguna og daman virðist vera fædd í hlutverkið en hún hefur verið í kringum tískubransann frá því hún fæddist og fataskápurinn hennar gerir margar fullorðnar konur grænar af öfund.
David Beckham mætti á sýninguna hjá eiginkonunni og var henni til halds og trausts áður en hann settist við hliðina á engri annari en Önnu Wintour ritstjóra Vogue. Harper fékk þó ekki að sitja frammi með pabba sínum heldur var hún baksviðs með mömmu sinni þar sem hún hafði verið allan daginn og aðstoðarfólki hennar.
David og Victoria fögnuðu svo deginum á veitingastaðnum Balthazar sem er einn sá heitasti í NY og hefur verið um árabil.
Eitthvað virtist Victoria þó vera þreytt þegar hún kom fram og hneigði sig í lok sýningarinnar en mikið álag hefur verið á henni vegna tískuvikunnar og hún er eflaust mjög fegin að vera búin að sýna.
Hún sótti innblásturinn sinn fyrir línuna í heimalandið í England enda er Victoria alsæl með að vera flutt aftur heim.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig