Victoria Beckham er gift ríkasta knattspyrnumanni heims, á fjögur börn, rekur tískuveldi og hún nær líka að fara með börnin í skólann og sinna þeim eins og hinar mömmurnar.
Þessi fyrrum kryddpía og A-lista stjarna reynir að eyða eins miklum tíma og hún mögulega getur með börnunum sínum. Til þess vaknar hún m.a. á morgnana kl 06:30 og gefur sér hálftíma til að gera og græja áður en að börnin vakna, þá fær hún sér te, kaffi, málar sig og gerir sig fína fyrir daginn.
Börnin fara í skólana kl 07:50 og þá skipta hún og David börnunum á milli sín og keyra í sitthvora áttina með krakkana í sitthvorn skólann. Eftir það er það vinnan. Victoria stýrir tískuveldi sínu af einstakri natni og vill helst fá að koma nálægt öllu sem tengist því. Vinnustúdíóið hennar er í Battersea en þar vinna 80 manns, saumakonur og allir hinir.
Til að muna allt og vera með puttann á púlsinum þá er Frú Beckham með tvær handtöskur. Önnur er hennar eigin hönnun en í henni geymir hún iPhone, iPad og Macbook Pro tölvuna sína.
Victoriu þykir Sushi afar gott og fær sér það stundum í hádeginu í vinnunni. Hún passar vel uppá mataræðið sitt og drekkur mikið af grænum söfum, vatn og piparmyntute. Annars er hún dugleg að vinna og borða í einu þar sem lítill tími gefs oftast til þess að borða.
Klukkan fjögur er kominn tími til að sækja börnin og fara með þau heim til að gefa þeim að borða, koma þeim í íþróttir eða annað sem þau gera eftir skóla og um kvöldið hjálpar hún þeim að læra.
Að sjálfsögðu gefur Victoria sér líka tíma fyrir eiginmanninn fagra en þau eru dugleg að fara út að borða hvort sem þau fara bara tvö saman eða börnin með og öllum í fjölskyldunni finnst sushi gott þannig að það verður oft fyrir valinu.
Hljómar eins og samheldin hjón og eðlilegt fjölskyldulíf… svo er bara spurning hvort þetta er alveg satt?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig