Já allt er nú til dömur mínar kærar! Glamúr-Hollywood pían með rassinn góða, Kim Kardashian, hefur stofnað vefsíðu þar sem skóaðdáendur geta gerst áskrifendur að skóm!
Þú tekur stutt próf þar sem þú velur hvaða kjóll þér finnst flottastur, hver í Hollywood þér finnst best klædd og spurt er um aldur og fleira og þannig finnur síðan út hvernig skór þér finnst flottastir! Svo færðu upp fimm skópör sem þú getur valið úr. Ef þér lýst ekki á neitt færðu val af öðrum fimm pörum og ættir því á endanum að finna skó við þitt hæfi. Ótrúlega snjallt og sniðugt.
Áskriftin kostar ekki nema 39.95 dollara á mánuði sem er undir 5000 kr. fyrir fallegt skópar. Ekki slæmt! Þú ert ekki skyldug til að kaupa skó þótt þú takir próf og getur alltaf sleppt einum mánuði. Í raun er þetta hjálpartæki fyrir konur sem eiga erfitt með að finna sér fallega skó sem hentar þeim.
Skoðið síðuna hennar Kim HÉRNA
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.