Þessar myndir eru teknar af æfingu og eru smá forskot á sæluna fyrir haust og vetralínu Versace 2010 en eins og sjá má mun litagleði vorsins halda áfram inn í veturinn.
Donatella Versace er þekkt fyrir að hafa tekið við Versace tískuveldinu þegar bróðir hennar tískumógullinn Gianni Versace var árið 1997 myrtur við heimili sitt þegar hann snéri heim úr morgungöngu- en var hann skotin fyrir framan dyrnar á heimili sínu í Miami.
Við lát Gianni tók Donatella við starfi bróður sins og hefur verið í forsvari Versace síðan.
Hún hefur hannað fagra kjóla sem Hollywood stjörnur elska að enda sniðin kvenleg, kynþokkafull og ögrandi.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.