Það er fátt sem kemur konu í betra skap en vel dannaður, vel lyktandi og vel gefin karlmaður.
Sumir menn leggja sitthvað á sig til að lykta vel en aðrir pæla lítið í þessu. Ef það er maður í lífi þínu sem þér finnst að mætti lykta vel þá get ég mælt með einum Pour Homme sem lét mig hreinlega fá í hnén einn og sér. Það er ilmur frá Guerlain sem heitir því ágæta nafni L’instant.
Vanalega hef ég ekkert snúist í hringi yfir rakspíra en þessi hafði djúpstæð og varanleg áhrif á skynjun mína. Það er klassi yfir þessum ilmi um leið og það er einhver svona dulúðlegur kynþokki í gangi.
Nú veit ég ekki hvað flaskan af þessu kostar en grunar að hún sé á svona 6000 tjall í Fríhöfninni sem er kannski ekki sami prís og á Old Spice en ef þú hefur svipað lyktarskyn og undirrituð þá lofa ég að það gerist eitthvað þegar þú berð þessa lykt að vitum þér. Eitthvað mjög skemmtilegt.
Það er á hreinu að þegar ég fæ mér kærasta þá verður hann úðaður í þessu fram og aftur við hvert tilefni. Sama þó ég þurfi að gera mig út sem syngjandi símskeyti til að eiga fyrir flöskunni.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.