Dagur elskenda eða Valentínusardagurinn mikli er haldin hátíðlegur víðsvegar um heiminn en þó aðallega í Bandaríkjunum.
Þessi rómantíski dagur er á morgun, þann 14.febrúar og er því tilvalið að koma maka sínum á óvart með skemmtilegum veitingum sem ekki þarf að hafa mikið fyrir.
Hvort sem það er hjartalöguð kaka með bleiku eða rauðu smjörkremi, súkkulaðihúðuð jarðaber nú eða hjartalagaðar pönnunkökur með morgunkaffinu þá finnst mér alltaf gaman að gera eitthvað í tilefni dagsins og fagna ástinni !
Hérna má sjá skemmtilegar hugmyndir fyrir Valentínusardaginn.
Una Dögg Gudmundsdòttir er 28 àra Seltirningur sem býr nú í Vesturbæ ásamt eiginmanni og tveimur dætrum, 7 og 2 ára.
Una Dögg lauk BA prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands, en verandi pjattrófa inn að beini hefur hún einnig lært nagla og förðunarfræði. Una elskar að baka og elda en henni finnst best að hafa uppskriftirnar einfaldar, fljótlegar og auðvitað dásamlega góðar.