Sirkús Íslands sló í gegn á Volcano-sirkúslistahátíðinni sem nú er nýafstaðin og sýndi átján sýningar á tíu dögum – og það seldist upp á hverja einustu.
Meðlimir voru yfir sig hamingjusamir að fá loks að sýna í alvöru sirkústjaldi – en nú eru öll tjöldin farin aftur til síns heima, til Noregs.
Sirkús Íslands er hins vegar komin með sirkústjaldsbakteríuna og ætla þau að safna fyrir alvöru sirkústjaldi:
“Ef það tekst munum við ferðast um landið næsta sumar með sýningar fyrir börn og fullorðna auk sirkúsnámskeiða. Söfnunin fer fram í gegnum Karolina Fund og verður þetta stærsta hópfjármögnun Íslandssögunnar. Við heitum Sirkús Íslands, ekki Sirkús Reykjavíkur, og með tjaldinu getum við staðið undir nafni og sett upp sirkússýningar um allt land.”
Af hverju að safna fyrir sirkústjaldi?
1. Við viljum bjóða öllum upp á alvöru íslenska sirkússkemmtun. Húsnæði á Íslandi hentar misvel til sirkúsbragða, en í hverju einasta bæjarfélagi er landsspilda til að reisa tjald.
2. Í Sirkús Íslands eru 25 einstaklingar, og þar af níu sem vinna í fullu starfi við sirkúsinn. Í haust fara þrír til náms í sirkúslistum og í framtíðinni munu fleiri sem ólust upp í sirkúsnum fara utan til náms. Með sirkústjaldi verður til raunveruleg sirkúsframtíð á Íslandi.
3.Íslendingar hafa áhuga á íslenskum sirkús og við eigum aðdáendur á öllum aldri og brátt um allt land.
“Ef við náum að safna fyrir tjaldinu munum við ferðast um landið næsta sumar og bjóða upp á frábærar fjölskyldusýningar á daginn og fullorðinssirkúsinn Skinnsemi á kvöldin. Við munum heimsækja Snæfellsnes, Vestfirði, Norður-, Austur- og Suðurland auk þess að koma fram í Reykjavík. Við munum líka bjóða upp á sirkúsnámskeið fyrir börn og unglinga í tjaldinu auk fullorðinsnámskeiða í sirkúslistum, grippli (juggle), húlla og dansi svo eitthvað sé nefnt.”
Söfnunin fer fram á: http://karolinafund.com/project/view/139 og við hvetjum allar, þá sérstaklega landsbyggðardömur, sem elska leikhús og Sirkús til að leggja sitt af mörkum. Hver 500 og 1000 kall skiptir máli.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.