Ég hef undanfarið tekið miklu ástfóstri við fallega, blúndu hnésokka. Flottast finnst mér að klæðast hnésokkum og skóm í sama lit. Kemur út eins og “stígvél” en er það alls ekki. Þetta er líka rosa fínt í íslensku sumri sem er aldrei svo heitt að þú þurfir sandala. Skemmtilegra að vera á hælum og “sposs-sokkum”.. Og svo í hnésíðum kjól eða pilsi.
Sætt, sexý og sumarlegt.
Takið eftir miðmyndinni. Þar eru heimaheklaðir og prjónaðir sokkar með fallegum slaufum. Ótrúlega sætir.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.