Langar þig til að breyta til í augnförðuninni en finnst þú ekki nógu góð í skyggingunum? Þá er þessi augnförðun fyrir þig, einföld og þægileg.
Þú ferð bara rólega í augnförðunina, fikrar þig áfram og velur bara einn bjartan augnskuggalit á allt augnlokið. Muna svo að skella maskara á augnhárin og trikkið á móti sterkum augnskugga -er að vera með dempaðan varalit, eða bara gloss í mildum lit.
Gæti ekki verið auðveldara, smart, töff og klár á deitið eða út á lífið.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.