Maður heldur að þetta sé bara komið, maður hafi séð allt en þá gerist eitthvað meira!
Ég hélt ég væri örugglega búin að sjá plöstuðustu konur jarðar, Joan Rivers, kattarkonuna, Donatellu Versace, sænsku tvíburasysturnar og allar skrítnustu skinkurnar en þá detta þessar stallsystur inn. Vinkonurnar – Tijana og Sanja!
Í raun er ekki hægt að þekkja þær í sundur því þær fá alltaf ‘tveir fyrir einn’ hjá lélega lýtalækninum sínum sem starfar eflaust í bílskúr einhversstaðar í Serbíu þar sem þessar túttur eiga heima. Ég sé að minnsta kosti ekki hver er Tijana og hver er Sanja. Með bónuskortinu sínu fá þær líka ókeypis triple spray-tan þegar þær koma að láta taka saumana. Góður díll.
Nú má ekki klaga þetta upp á mig en mig grunar sterklega að þær afli sér tekna með því að fara úr fötunum og leika svo í myndum. En hvað veit maður svosum. Kannski vinna þær á sama leikskólanum?
Hér er Sanja á Facebook.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.