Það eru ekki mörg ár síðan að það var kannski ein kona í Reykjavík með húðflúr en í dag er öldin önnur…
Það var upp úr tíunda áratug síðustu aldar að húðflúr urðu meira áberandi hjá Íslensku kvenfólki.
Þá voru sólir, kínversk tákn, stjörnumerki eða ‘tribal’ tattúin vinsæl á mjóbak eða úlnlið en í dag er öldin sannarlega önnur!
Stelpur á öllum aldri eru flúraðar frá toppi til táar og nú er það ekki spurning um að skammast sín fyrir flúrin á Grund, ætli þær fari ekki bara saman að fá sér ný, ef eitthvað pláss er þá eftir á líkamanum?
Stórstjörnurnar eru iðnar við að fá sér tattú en bæði Lady Gaga, Rihanna, Megan Fox og fleiri eru frægar fyrir flúrin sem þær hafa skreytt sína föngulegu líkama með.
Hér er frábært myndasafn fengið að láni frá Pineterest sem sýnir gullfallegar konur er eiga það allar sameiginlegt að vera sérlegar áhugakonur um húðflúr og miklir kroppar.
Sumum finnst kannski nóg um en klárlega eru mörg flúrin þarna ansi flott. Sjáðu…
__________________________________________________________
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.