Meik, maskari, kinnalitur og gloss… Þetta er eitthvað sem margar okkar nota á hverjum degi, alla daga ársins, – eða svo gott sem.
Sumar fara ekki út með ruslið án þess að setja eitthvað ‘framan í sig’ en flestum er þó nokkuð sama og við hendumst út í sjoppu eða annað án þess að nota neinar förðunarvörur áður. Þetta á við um þessar Hollywoodstjörnur líka en hér má sjá þessar ofurfrægu stelpur sem flestar lifa meðal annars á góðu útliti sínu, alveg ómálaðar. Breytingarnar á sumum eru ansi miklar enda síðari myndirnar ekki teknar með zúmm linsu papparassans úr kílómeters fjarlægð, og jafnvel fótósjoppaðar líka.
En það er skemmtilegt að skoða þetta…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.