Naglalökk og sokkabuxur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna síðustu ár enda einstaklega ódýr leið til að poppa upp útlitið.
Naglatískan er svo breytileg eins og annað og stóru húsin eins og OPI, Chanel, L’Oreal ofl alltaf dugleg að koma með flottar nýjungar á markað, hvort sem það er möttunarlakk, shatter, glimmer eða allskonar ásetningarskraut.
Hér eru nokkrar flottar myndir sem ég tók saman af því sem er að koma sterkt inn nú í vor og sumar og verður svo meira áberandi með haustinu.
Matta lakkið er alveg að slá í gegn og þá sér í lagi að nota það til að útbúa fallegt ‘french’ manicure með nýjum hætti.
Anna Margrét er fædd í Reykjavík árið 1987, en hefur alið manninn í Svíþjóð, Suður Ameríku og víðar.
Anna er krabbi, og þykja þeir hinir kátustu. Tíska, förðun, jafnrétti, skrif og ferðalög um Afríku eru nokkur af hennar áhugamálum.