Dreymir þig um að fá vöxtinn hennar Beyoncé fyrir næstu helgi? Þá skaltu lesa meira því hér er á ferðinni snilldar nýjung frá Muffin Top Killer, sérfræðingunum í því að láta okkur líta út fyrir að vera með fullkomin vöxt á algjörum mettíma.
Með því að sauma tölurnar sjálf í flíkina ertu komin með sérsniðna aðhaldsflík, sem hentar þínum vexti fullkomlega.
Þú stillir ‘vöxtinn’ sjálf
Frábærar fyrir mömmur
Þessar buxur eru einnig frábær lausn fyrir nýbakaðar mæður sem vilja aðhald og stuðning yfir magasvæðið eftir barnsburð.
Einn helsti kosturinn er þó sá að með því að klæðast buxunum og hneppa þeim aðeins upp að framanverðu, hylur MTK® teygjan á buxunum alveg magasvæðið sem oft vill verða bert þegar konur eru að gefa börnum sínum brjóst og þurfa að hneppa frá blússunni eða smeygja sér úr bolnum. Með því að klæðast buxunum ertu laus við þetta hvimleiða vandamál sem hrjáir margar nýbakaðar mæður.
Til að MuffinTopKiller® Snap-up buxurnar aðlagist sem best mælum við með því að konur gangi í buxunum í 1-2 skipti áður en tölurnar eru festar við brjóstahaldarann þar sem MTK® teygjan er gerð úr “lifandi” efni sem aðlagast líkama hverrar konu á ólíkan hátt eftir fyrstu skipti notkunar.
SnapUP buxurnar kosta 12900 krónur og þú getur pantað þær HÉR. Við getum ekki beðið eftir því að prófa þær!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.