Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sif Cosmetics hefur sett á markað nýtt EGF dagkrem sem er sérstaklega þróað til notkunar með EGF húðdropunum sem fyrirtækið setti á markað á síðasta ári.
Dagkremið hentar vel undir farða og viðheldur rakastigi húðarinnar, gengur hratt inn í húðina og gefur mjúka og fallega áferð. Kremið var sérstaklega þróað til að styðja við virkni EGF húðdropanna sem notaðir eru að kvöldi en
ein algengasta spurningin sem framleiðendur húðdropanna hafa fengið frá dyggum notendum EGF húðdropanna er hvaða húðvörur þeir eigi að nota á daginn, á móti húðdropunum á nóttunni.
“Við svörum nú þessari spurningu með mjög góðu dagkremi sem er ætlað að styðja við virkni húðdropanna. Það er þróað í samstarfi við svissneskt fyrirtæki með mikla reynsu af þróun húðvara og í samræmi við okkar áherslu á virkni og hreinleika. Fyrstu viðbrögð þeirra sem hafa fengið að prófa kremið hjá okkur hafa verið framar vonum og ég hlakka til að sjá viðbrögðin frá kröfuhörðum íslenskum neytendum,“ segir Björn Örvar, forstjóri Sif í fréttatilkynningu.
Ríflega þrjátíu þúsund flöskur af húðdropunum seldust fyrsta árið sem þeir voru á markaði hér á landi. Þeir voru nýlega settir á markað í Bandaríkjunum með fjölmennri kynningu í Soho House á Manhattan þar sem yfir 50 ritstjórar glanstímarita, blaðamenn og bloggarar sem sérhæfa sig í umfjöllun um tísku og fegurð fengu að kynnast töfradropunum frá Íslandi. Markaðssetning hófst einnig nýlega í Ástralíu og þar hefur tískublaðið Harper‘s Bazaar útnefnt húðdropana sína uppáhalds snyrtivöru.
Hægt er að kaupa EGF dagkremið og húðdropana í verslunum Hagkaups og Lyfju og í betri snyrtivöruverslunum og apótekum um allt land.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.