Það er óhætt að segja að Sarah Jessica Parker sé dugleg að breyta til og að hún sé nokkuð spennandi þegar það kemur að klæðavali og stíl…
Leikkonan geðþekka er augljóslega óhrædd við að taka áhættur og prófa eitthvað nýtt. Til að mynda er hún dugleg að breyta hári sínu og hefur skartað ótal greiðslum, klippingum og háralitum í gengum tíðina.
Að sjálfsögðu hefur hún tekið nokkur feilspor í þeim málum sem er auðvitað bara partur af því að prófa nýja hluti. Persónulega finnst mér hún flottust með slegið og liðað hár, þannig nýtur þetta endalaust þykka og mikla hár hennar sín best að mínu mati!
Hér fyrir neðan er smá albúm sem sýnir nokkur skemmtileg ‘lúkk’ frá þessari tískudrottningu!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.