Ég rakst á þessar furðulegu myndir af húsfreyjunni Mörthu Stewart á Twitter.
Myndirnar setti hún sjálf inn þar sem hún sat hjá tannfegrunarsérfræðingi og lét hvítta tennurnar í sér. Mér skildist að flestar stjörnur hefðu áhyggjur af ímynd sinni og pössuðu vel upp á allar myndbirtingar en þetta á greinilega ekki við um þessa ofurhúsmóður. Henni er nokk sama þó að við sjáum hana skrítna og sveitta með gleraugu og furðulegt dótarí í munninum.
Hún tekur bara myndir á símann sinn og birtir si svona um leið og hún segir:
“Bleaching is a very strange process. Have you tried it?”
eða “Hvíttun er furðulegt ferli. Hefur þú prófað?” Svo kemur þessi og þá segir hún “And now for the bleaching. Wh( price beauty!”…
Martha flippari… ég átti frekar von á bollakökumyndum.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.