Það var góð stemmning í heildverslunni Termu þegar tvær pjattrófur mættu á glæsilegakynningu nýja haustlúkksins hjá Lancôme í síðustu viku.
Fjöldinn allur af fallegum konum voru mættar til að kynna sér nýja útlitið sem einkennist af stemmningunni sem var ríkjandi á upphafsárum Lancôme þegar fyrsta stofan var stofnuð á St. Honoré götu nr. 29.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=tEKdsHU9dy0[/youtube]Við lærðum hvernig á að gera fullkomna eye-liner línu og nota rauðan varalit en með þessu haustlúkki sýna Lancôme og sanna að það fer öllum konum vel að bera slíkan lit. Þetta er allt bara spurning um rétta tóninn en rauður varalitur og svartur eyeliner eru bara pjúra klassík.
Hér eru nokkrar myndir úr veislunni sem var ótrúlega vel heppnuð og skemmtileg í alla staði:
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.