Við Pjöttur furðum okkur stundum á því hvað kynsystur okkar í skemmtanabransanum virðast ná að eldast ótrúlega fallega.
Og ekki bara í skemmtanabransanum því allt í kringum okkur eru svo fallegar konur, komnar yfir fertugt og fimmtugt. Meira að segja eru margar ömmurnar ansi kynþokkafullar og alveg með’etta á sextugsaldrinum. Hún Halle Berry hérna er orðin 47 ára, fædd 14 ágúst 1966. Magnað hreinlega.
Kannski að nútíma lifnaðarhættir séu bara svona góðir við okkur? Það er af sem áður var að fertug kona var eitthvað sérstaklega ‘gömul’. Við höfum tækifæri til að fara vel með okkur á svo margvíslegan hátt og lífstíllinn er eins og hver og einn kýs að hann sé. Vinkonur okkar í SATC gerðu þennan aldur mikið eftirsóknarverðari en tvítugsárin enda dásamlegt að vera orðin fullorðin, þroskuð og líða vel í eigin skinni meðan þú hefur aldrei litið betur út.
Ein okkar á kunningja, fágaðan mann sem notar meira að segja lýsingarorðið fertug þegar hann talar um sætar konur. Segir orðið ‘fertug’ með svo mikilli innlifun að það er eins og hann sé að tala um konfekt.
Bara gaman! Hér eru nokkar skvísur sem eru komnar á fimmtugsaldur og líta hreint stórkostlega út. Fertugar og flottar.
Uma Thurman – 43 ára, fædd 29 apríl 1970
Sofia Vergara 41 árs, fædd 10 júlí 1972
Salma Hayek 47 ára, fædd 2. september 1966
Rachel Weisz 43 ára, fædd 7. mars 1972
Lucy Liu 44 years (December 2, 1968)
Jenny McCarthy fertug, fædd 1. nóv 1972
Jennifer Lopez 44 ára, fædd 1.júlí 1969
Jennifer Aniston 44 ára, fædd 11.febrúar 1969
Jada Pinkett Smith 42, fædd 18 september 1971
Heidi Klum – 40 ára, fædd 1.júní 1973
Gwyneth Paltrow – 40 ára, fædd 27 september 1972
Cindy Crawford – 47 ára, fædd 20. febrúar 1966
Denise Richards – 42 ára, fædd 17 febrúar 1972
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.