Jane Fonda er ein þeirra sem lætur hvorki aldur né fyrri störf stoppa sig í að líta stórkostlega vel út.
Daman er 73 ára gömul en lítur út fyrir að vera ekki deginum eldri en 45 og burtséð frá því að líta vel út er hún á fullu að lifa lífinu en Jane er nú stödd í New York þar sem hún er að kynna nýja bók – Prime Time: Love, Health, Sex, Fitness, Friendship, Spirit — Making the Most of all of Your Life. Hún virðist kunna það.
Í tengslum við kynningu bókarinnar fór hún í viðtal hjá The Today Show og ræddi þá ákvörðun að hafa farið í fegrunaraðgerðir.
“Mig langaði bara að kaupa mér smá tíma. Vildi líta út eins og mér leið. Þetta snerist ekki um að verða við kröfum um útlit,” sagði Jane sem lét meðal annars vinna á höku, hálsi og taka bauga undan augum.
“Þegar þetta var búið leit ég í spegil og hugsaði guð minn góður, þarna er ég! Mér fannst ég úthvíld og leið frábærlega… ekki það að ég sé neitt sérstaklega stolt af þessu, ég vildi bara hafa samræmi á því innra og ytra.”
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.