Það skemmtilegasta við tískuna í dag er hvernig við megum “næstum því” allt um leið og það er enginn einn straumur sem allir verða að fylgja.
Þetta á líka við um hártískuna en miðað við það sem er að gerast á tískupöllunum þessi misserin er allt í boði. Það sem er kannski mest áberandi er stutta hárið sem hefur komið ótrúlega sterkt inn upp á síðkastið, sem og snúðar og tögl neðarlega á hnakkanum.
Flettu í gegnum þetta flotta albúm til að skoða það heitasta í sumar. Skemmtileg fjölbreytni í gangi.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.