Ég var að prófa að nota glimmer á neglurnar og þær minna mig rosalega á áramótin!
Ég notaði blautan glimmer eyeliner sem heitir diamond frá Make up Store – er á myndinni, því næst glært naglalakk, og duft glimmer úr föndurbúð.
1.
Fyrst byrjaði ég á því að setja smá af eyelinerinum yfir neglurnar.
2.
Næst fer glært naglalakk yfir.
3.
Áður en það er orðið þurrt setti ég duft glimmer bara fremst á neglurnar og þrýsti svo á það með eyrnapinna.
Glimmerið helst vel á og fer ekki af útum allt !!