Þessi ungi maður er búinn að fara í ótal lýtaaðgerðir á 16 ára tímabili. Allt í þeim ‘göfuga’ tilgangi að líta út eins og átrúnaðargoðið Súperman.
Filippseyingurinn Herbert Chavez (35) er algjörlega búinn að breyta á sér andlitinu frá því sem áður var en maðurinn elskar Súperman og vildi ekkert annað en að líta nákvæmlega út eins og hann. Það tók 19 aðgerðir til að fá þetta útlit sem hann er með í dag.
Herbert er búinn að láta móta á sér nefið, hvítta á sér húðina, fara í fitusog, láta stækka kjálkann, hann er búinn að láta setja púða í brjóstvöðvana og meira að segja einnig á kviðinn. Allt þetta til að verða lifandi eftirmynd af Súperman en Herbert varð fyrst hugfanginn af þessari hetju þegar hann var 5 ára.
Og núna þrjátíu árum síðar og nokkrum milljónum fátækari hefur hann náð takmarkinu. Herbert fer reglulega út á meðal almennings klæddur í fullan Súperman skrúðann með hárið greitt eins og hetjan hefur það.
“Mér líður eins og súperhetju í hvert sinn sem ég er kominn í búninginn, ég er ekki að stefna á að bjarga heiminum heldur að hjálpa mínu litla þorpi. Fá börnin til að brosa og skemmta þeim sem hafa gaman af”.
Segir Herbert og tekur fram að hann sjái ekki eftir neinu: “Fólk gefur sig á tal við mig á götum úti og vill fá að taka myndir með mér. Þeim finnst afar spennandi að sjá “real life” Súperman gangandi um götur á Filipseyjum”.
En þetta var ekki auðvelt. Hann hefur verið nánast í aðgerðum á hverju ári til að fullkomna útlitið og takið eftir því að hann er einnig búinn að láta gera hökuna á sér nákvæmlega eins og ofurhetjunnar, með hökuskarð.
“Þess er krafist af ofurhetjum að þær séu með hið fullkomna útlit, þær geta ekki slasast eða dáið. En þar sem ég er bara manneskja þá get ég bara hermt eftir útliti súperhetju.
Ég er frá Filipseyjum og er með útlits einkenni asíu búa og leit alls ekki út eins og hinn hvíti Súpermann svo um leið og ég var búinn að safna mér nægum peningum til að klára aðgerðirnar mínar þá lét ég vaða og er ánægður með útkomuna.
Það er ekki auðvelt að uppfylla væntingar fólks með því að lifa sem súperhetja. Það er ástæðan fyrir því að ég fór í allar þessar aðgerðir og ég er stöðugt að láta laga og betrumbæta útlitið”.
Herbert er núna að plana enn frekari breytingar á útliti sínu því hann vill verða hærri og fá þessa flottu magavöðva og glerharðan kúlurass.
“Hversvegna ætti ég að sjá eftir þessu? Allt sem hefur gerst í mínu lífi eftir þessar breytingar hafa verið jákvæðar og allt er það Súperman að þakka”.
“Þegar líkaminn kemur til með að geta ekki meira af aðgerðum eins og læknirinn minn hefur sagt mér að þá mun ég hætta en það verður vonandi ekki fyrr en ég verð orðin gamall maður”.
Þú getur lesið meira um þennan unga ‘ofurhuga’ HÉR.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.