Í gær sýndi tískuhús Chanel smartheit á sýningarpöllunum í París.
Venjulega eru allra augu á tískunin sjálfri svo það er gaman að taka fókusinn aðeins nær og skoða augnförðunina og hárgreiðsluna sem módelin skarta. Hrikalega flott!
Takið eftir því hvað hárið er fallega greitt til hliðar og sett í hnút í hnakkann með skrautlegum nælum alsettum glitrandi steinum.
Í lokin eru svo nokkur dress sem hægt er að slefa sig þurran í munninum yfir og óska sér í fataskápinn á næsta tímabili!
Guðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.