Förðun D&G fyrir næsta haust var tekin beint upp frá krökkunum á götunni og stíliseruð fyrir yngri kynslóðina.
Mjög þykkur eyeliner (sixtí’s) er áberandi, kinnarnar fengu létta stroku af kinnalit og varir voru náttúrulegar, svona til að viðhalda ímynd hinna ungu kvenna nútímans.
Þar sem naglalakk er einstaklega vinsælt í dag voru neglurnar naglalakkaðar í sterkum litum, rauð-appelsínugult, kanarígult og fjólublátt (eins og ein myndin sýnir) en allt voru þetta litir í stíl við fatnaðinn sem sýndur var á pöllunum.
Hárið á fyrirsætunum var þvegið baksviðs, skipt í miðju og sléttað.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.