Harry Potter leikkonan Emma Watson hefur verið fengin til að vera nýtt andlit Lancome snyrtivaranna.
Þetta kemur ýmsum á óvart því Emma er jú ung, stutthærð og óvanalegur valkostur hjá fyrirtækinu. Hún segir að þetta sé mikill heiður fyrir sig enda sé hún hrifin af merkinu sem eigi sér langa hefð og sögu.
Hér má sjá viðtal við Emmu og myndir af gerð auglýsingarinnar Trésor Midnight Rose og HÉR er launch partýið þegar tilkynnt var að Emma myndi taka að sér að vera andlit Trésor Midnight Rose.
Auglýsinguna sjálfa má sjá hérna en þetta er auðvitað rómantísk lítil ástarsaga um bókaorm og stutthærða þokkadís:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=uJq1fTj_AIk[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.