Sumar okkar vissu fyrst af henni þegar hún kallaði sig Posh Spice en Victoria Caroline Beckham (föðurnafn Adams f. 17 April 1974) hefur sannarlega átt sér líf eftir Kryddpíurnar.
Daman hefur satt best að segja verið á síðum slúðurblaðanna síðustu 12-15 árin. Eftir að hún byrjaði með knattspyrnuhetjunni David Beckham hefur ekkert skyggt á frægðarsól hennar og við höfum fylgst með henni á síðum slúðurblaðanna ár eftir ár. Victoria hefur verið brúnkusprautuð, með sílikonbrjóst, án sílikonbrjósta, ljóshærð, stutthærð, dökkhærð, lummó, lekker og allt þar á milli.
Í dag er hún tískudrottning, stolt móðir þriggja drengja og lítillar stúlku, hamingjusamlega giftur heimshornaflakkari sem leggur tískuheiminn að 15 sm hælunum á fótum sér.
Sjáðu hvernig Victoria Beckham hefur breyst og mótast undanfarin ár…
______________________________________________________________
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.