Blái liturinn virðist vera eldheitur um þessar mundir í Hollywood – ekki aðeins í fatnaði heldur einnig í hári.
Söngkonan Katy Perry skartar núna bláum háralit og það verður að segjast að skvísan ber hann bara ágætlega, hún hefur reyndar áður skartað blárri hárkollu en núna er hún með svokallaða “Bob” klippingu og með hárið blátt að lit.
Söngkonan Nicki Minaj fór reynar alla leið með bláa útlitið fyrir Vogue tímaritið og litaði sjálfa sig ALLA bláa. Ákvað að “strumpa” sig aðeins upp, hún er svo uppátækjasöm í fatavali og hárlitum að þetta útlit kom mér eiginlega bara ekkert á óvart.
Amber Rose fyrrverandi kærasta Kanye West setti bláan lit í hárið á sér en hún er yfirleitt með mjög stutt og rakað hár.
Lady Gaga er án efa drottning furðulegra fata og hárstíla og hefur hún verið með nokkrar útfærslur af bláa hárlitnum-allt hárkollur!
Þess má einnig geta að nýfædd dóttir Beyonce heitir Blue Carter Ivy svo það virðist sem að blái liturinn sé kominn til að vera það er bara spurning í hvaða útfærslu hann kemur næst?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig