Ein sú allra hárprúðasta í glysborginni er án vafa drottningin sjálf Beyonce Knowles.
Þessi glæsilega kona hefur sportað allskonar hágreiðslum í gegnum tíðina en í gær kom hún aðdáendum sínum svo sannarlega á óvart þegar hún birti myndir af nýju klippingunni sinni á Instagram. Þar sést söngkona með snöggklipptan drengjakoll og ljóslitað hárið.
Svo virðist sem Beyonce hafi sagt skilið við hárkollur og tilheyrandi hárlengingar en hún hefur notast við slíkt síðan hún kom fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Destiny’s Child árið 1998.
Hárkollurnar sem Beyonce hefur sankað að sér eru af hæsta gæðaflokki og eru sérhannaðar fyrir stjörnuna. Nú hyggst Beyonce hinsvegar gefa allt hárkollusafnið sitt til góðgerðasamtaka fyrir krabbameinssjúklinga en andvirði hárkollannna nemur um einni milljón dollara.
Ástæðan fyrir þessari miklu útlitsbreytingu er mögulega vegna óhapps sem Beyonce lenti í fyrir um tveim vikum á tónleikum. Þar var hún að taka ballöðuna Halo en varð fyrir því óláni að festa hárlengingarnar sínar í stórri viftu.
Söngkonan lét það þó ekki stoppa sig og tók lagið af mikilli innlifun á meðan taugaóstyrkur sviðsmaður gerði sitt besta við að losa lokkana.
Ekki er víst hversu lengi Beyonce heldur sig við drengjakollinn en margar stjörnur hafa prufað að klippa sig svo stutt enda falleg og einföld klipping.
Hér eru nokkrar stjörnur sem sagt hafa skilið við síða hárið. Glæsilegt og klassískt.
Anna Margrét er fædd í Reykjavík árið 1987, en hefur alið manninn í Svíþjóð, Suður Ameríku og víðar.
Anna er krabbi, og þykja þeir hinir kátustu. Tíska, förðun, jafnrétti, skrif og ferðalög um Afríku eru nokkur af hennar áhugamálum.