Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að fólk verði fallegra og kynþokkafyllra með aldrinum. Það er að segja… ef það fer vel með sig.
Það er ekkert ómótstæðilegra en dýpt og þroski í bland við gáfur og fegurð.
Fransk-ættaða fyrirsætan Yasmina Rossi er gott dæmi um slíka manneskju. Hún er ótrúlega þokkafull og falleg, vaxin eins og 25 ára en daman er rétt tæplega sextug og amma tveggja barnabarna!
Hún hefur starfað sem fyrirsæta frá tvítugu en ferill hennar tók rækilegan kipp þegar hún var 45 ára. Þá sá hún að það var gat á markaðnum fyrir sinn aldur og sótti sér umboðsmann. Það var svo árið 2012 sem hún landaði samningi við Marks og Spencer sem gerði hana heimsfræga.
Yasmina segir galdurinn við þetta ferska útlit vera að borða hollt og hreyfa okkur hóflega, semsagt ekki fara yfirum í ræktinni.
Hún sjálf borðar eitt avocado á dag og skrúbbar húðina vikulega með heimagerðum skrúbb úr ólífuolíu og sykri. Svo borðar hún lífrænan fisk og kjöt.
Yasmina kann líka að njóta og það sér maður á Instagramminu hennar. Hún hefur gaman af listrænni ljósmyndun og nærist greinilega á orku náttúrunnar en hún býr við Malibu ströndina í Kaliforníu og tekur reglulegar gönguferðir með sjónum.
Til að fegra tilveruna enn meira á hún alveg ofsalega sætan kærasta sem er grásprengdur í stíl við hana. Silfurrefur fyrir silfurtæfu! Sannkölluð fegurðarbomba þessi tæplega sextuga kona. Algjört bjútí!
Hér eru fleiri flottar, sexý og komnar yfir fimmtugt.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.